Þjóð undir þaki – jafnrétti og jafnvægi á húsnæðismarkaði
Húsnæðisþing 2019
Yfirskriftin í ár er „Þjóð undir þaki – jafnrétti og jafnvægi á húsnæðismarkaði“ sem undirstrikar fyrst og fremst mikilvægi aðgengis allra að húsnæði við hæfi en jafnvægið vísar í að uppbygging þurfi að vera í takti við þörf og að hún skapi fólki heilnæmt og gott umhverfi.